Hreinsitækni ehf

View Original

Hreinsitækni kaupir Varnir og Eftirlit.

Hreinsitækni ehf. hefur keypt allt hlutafé Varna og Eftirlits ehf. og hefur tekið við rekstri félagsins.

Með þessum kaupum breikkar Hreinsitækni þjónustuframboð sitt en að öðru leyti séu engar breytingar fyrirhugaðar á starfsemi fyrirtækisins eða þjónustu við viðskiptavini. Allir starfsmenn muni halda áfram eftir eigendaskiptin.

Fyrirtækjaráðgjöf Íslenskra verðbréfa hafði milligöngu um kaupin og stýrði söluferlinu.