Minni holræsabíll
Hreinsitækni ehf hefur í notkun „mini“ holræsabíl.
Bíllinn er lítill og léttur en hefur alla þá eiginleika sem þarf til að geta unnið verkin fljótt og vel. Bíllinn er sérlega hentugur til vinnu við bílastæðahús við heimahús, bílakjallara og á öðrum þeim stöðum þar sem erfitt og óþarft er að nota stærri bíla.