Hreinsitækni

Farsæld í 50 ár

Hreinsitækni er leiðandi fyrirtæki við þrif á samgöngumannvirkjum og gönguleiðum, viðhald og þjónustu á fráveitukerfum og söfnun og förgun á úrgangsolíu og öðrum spilliefnum. Þetta eru þrjár meginstoðir fyrirtækisins.

Félagið var stofnað árið 1976 og hefur starfað óslitið síðan. Með kaupum og sameiningu á lykil fyrirtækjum hefur félagið stækkað jafnt og þétt undanfarna áratugi. Innri vöxtur hefur einnig verið stöðugur.

Sameining þeirra fyrirtækja sem Hreinsitækni hefur keypt hefur skapað þrjú megintekjusvið félagsins. Hvert svið stendur traustum fótum og saman mynda þau öflugt félag sem stöðugt vinnur að því að hámarka samlegð sviðanna og um leið að tryggja hagkvæma þjónustu fyrir viðskiptavini. Félagið kappkostar að tækjafloti sé afkastamikill og eins umhverfisvænn og mögulegt er á hverjum tíma. Fráveitukerfi og samgöngumannvirki eru hluti af mikilvægum innviðum samfélagsins og þar getur Hreinsitækni boðið upp á heildstæða þjónustu fyrir sveitarfélög og fyrirtæki.

Hreinsitækni er nú með aðstöðu og tækjaflota í fjórum landshlutum en sinnir verkefnum um allt land. Hjá félaginu starfa á þriðja hundrað manns og viðskiptavinir eru mörg af stærstu sveitarfélögum landsins og fyrirtæki um allt land.

Hreinsitækni hefur innleitt jafnlaunastefnu.