Fóðrun lagna

Við höfum sérhæft okkur í endurgerð lagna án uppgraftar.

Fóðrun stofnlagna

Í myndbandinu hér að neðan er útskýrt í stuttu máli hvernig fóðrun götulagna er framkvæmd.

Við höfum sérhæft okkur í endurgerð lagna án uppgraftar. Aðferðin, sem ber heitið Inpipe, sparar tíma, veldur lágmarks ónæði og er ódýrari. Hún hefur verið notuð víða um heim frá því snemma á áttunda áratug síðustu aldar. Viðgerð af þessu tagi veldur litlu raski því lagnirnar eru lagfærðar innan frá.

Nánar um fóðrun lagna hér fyrir neðan

 

Nýju lögninni er komið fyrir inni í skemmdu lögninni og leggst efnið þétt að og steypist fast við gömlu lögnina. Nýja lögnin er úr sérhönnuðu trefjaefni sem er hert með útfjólubláu ljósi og harðnar nær samstundis. Opnað er fyrir aðliggjandi lagnir með fjarstýrðum fræsara eftir að ný lögn er orðin fullhert. Endurgerð lögn er tilbúin eftir einn til tvo sólarhringa og veldur íbúum litlu ónæði. Tafir á umferð eru mjög litlar og ekki þarf að grafa niður á gömlu lögnina með tilheyrandi raski. Fimmtíu ára ábyrgð er á endurnýjaðri lögn, ef rétt er staðið að framkvæmdinni.

Lagnafóðranir af þessu tagi henta við margvíslegar aðstæður. Kostirnir eru ótvíræðir:

  • Lagnafóðranir af þessu tagi henta við margvíslegar aðstæður.  Kostirnir eru ótvíræðir:

    Hægt er að lagfæra lagnir á stuttum tíma þar sem ekki þarf að fara út í tímafrekan uppgröft með tilheyrandi raski.

    Fóðrunin er löguð að aðstæðum á hverjum stað og fyrirfram sniðin að þeirri framkvæmd sem farið er í.

    Framkvæmdir valda litlu ónæði.

    Lausnin er endanleg. Fóðrunin er sérsniðin að hverju verkefni fyrir sig.

    Inpipe veitir 50 ára ábyrgð á aðferðinni ef rétt er staðið að framkvæmdinni.

Hafa samband

Sendu okkur fyrirspurn

Við munum svara fljótt og örugglega.

    Almenn fyrirspurn

    Fyrirspurnum er svarað eins fljótt og auðið er