Þvottur/Olíuslys

Vatnsbílarnir okkar eru öflugir og afkastamiklir við hreinsun á bílastæðum og bílakjöllurum.

Þvottur/Olíuslys

Vatnsbílar eru notaðir við þvott á ýmsum mannvirkjum. Við hreinsun á bílastæðum og í bílakjöllurum og þá ásamt vélsóp sem tekur upp efnið svo það fari sem minnst niður í lagnakerfið.

Á vatnsbílnum er 100-150m löng slanga sem hægt er að draga út og nota til þess að sprauta úr hornum og þvo yfir gólf eða annað sem þrífa skal.
Það eru einnig kraftmiklir spíssar framan á bílnum sem sprautað er úr um leið og ekið er. Þannig er fljótlegt að þrífa stór plön og götur.
Umhverfisvæn sápa er í bílnum og er notuð ef um þrif á olíu er að ræða. Þessi aðferð hentar hvort sem er á lítil eða stór svæði sem þarf að þrífa.
Aftan á bílnum er úðakerfi sem bæði er hægt að úða sápu á stærri olíuslys og vatni til dæmis til að rykbinda vegi.

Hafa samband

Sendu okkur fyrirspurn

Við munum svara fljótt og örugglega.

    Almenn fyrirspurn

    Fyrirspurnum er svarað eins fljótt og auðið er