Samfélagsstyrkir
Hreinsitækni starfar á sviði umhverfis- og iðnaðarþjónustu. Sem hluti af Styrkás samstæðunni leggur félagið ríka áherslu á sjálfbærni og samfélagslega ábyrgð í allri starfsemi sinni.
Styrkveitingar Hreinsitækni eru hluti af samfélagsábyrgð Styrkás samstæðunnar og fara fram í samræmi við sameiginlega styrkjastefnu sem gildir fyrir öll félög samstæðunnar. Með samfélagsstyrkjum styður Hreinsitækni við verkefni í almannaþágu, meðal annars á sviði íþrótta, æskulýðsmála, menningar, fræðslu og öryggis. Sérstök áhersla er lögð á verkefni sem stuðla að sjálfbærni, samfélagslegri þátttöku og sterkari innviðum í nærumhverfi félagsins.
Sótt er um styrk á vef Styrkás. Öllum umsóknum er svarað.
