Umhverfisstefna

Varfærni í umhverfismálum er mikilvægur þáttur í allri starfssemi og ákvarðanatöku fyrirtækisins.

Umhverfisvernd er höfð að leiðarljósi í allri starfsemi fyrirtækisins. Öll losun og förgun úrgangsefna ásamt vali á rekstrarvörum tekur mið af því.

Hreinsitækni ehf fylgist vel með nýjum tæknilegum lausnum og tækjabúnaði á markaðnum. Við reglulega endurnýjun á tækjabúnaði leitumst við alltaf við að  tryggja betri afköst, aukið öryggi og aukna umhverfisvernd.

Markmið Hreinsitækni ehf er að fyrirtækið verði ávallt í fremstu röð þegar kemur að umhverfismálum.